Feddit.is
-
Hvar finnið þið lemmy communities til að fylgjast með?
Ég meina communities á öðrum lemmy serverum. Ef ég fer í Communities hér þá sé ég eitthvað af communities frá öðrum þjónum en ekki mörg. Líklega bara þau sem notendur á þessum server eru búnir að subscribe'a á.
Hef verið að renna yfir serverana á https://join-lemmy.org/instances og skoða hvaða communities þeir eru með. Virðist geta subscribeað með því að kópera slóðina inn á community og setja inn í "Search" á communities síðunni hér. Ekki mjög þjált og tekur langan tíma.
Eruð þið með einhverja betri leið?
-
Velkomin á Feddit.is
Kæru notendur,
Við bjóðum ykkur velkomin á Feddit.is. Hér getum við rætt um allt milli himins og jarðar.
Tungumál
Færslur og athugasemdir eru aðallega á íslensku, en enska er einnig velkomin.
Fediverse
Feddit.is keyrir á Lemmy hugbúnaði og er hluti af Fediverse, sem þýðir að þú getur átt samskipti við notendur á öðrum Lemmy þjónum og öðrum samfélagsmiðlum. Þú þarft aðeins að búa til reikning hér til að tengjast þessu stóra neti.
Reglur
- Komdu fram við aðra af virðingu. Engin hatursorðræða eða mismunun.
- Ekkert ólöglegt efni eða neitt sem brýtur gegn íslenskum lögum.
- Engar óumbeðnar auglýsingar eða ruslpóstur.
- Ekki deila efni sem brýtur höfundarrétt.
- Ekki deila persónuupplýsingum um aðra án samþykkis.
- Ekki dreifa skaðlegum hugbúnaði eða tengingum.
- Tilkynntu óviðeigandi efni til stjórnenda.
- Brot á reglum getur leitt til banns.
Við hvetjum þig til að kynna þig, stofna nýtt samfélag eða deila áhugaverðu efni.
Takk!